Lýsing
Terbinafin Actavis er sveppalyf til að meðhöndla húðsýkingar af völdum húðsveppa
(t.d. Trichophyton) eða gersveppa (t.d. Candida Albicans) og til að meðhöndla litbrigðamyglu.
Terbinafin Actavis fæst án lyfseðils til meðferðar við sveppasýkingu á milli táa og sveppasýkingu í nára (þ.m.t. candida). Terbinafin Actavis krem er ekki ætlað til meðferðar við sveppasýkingu í nöglum. Ef grunur er um sveppasýkingu í nöglum (t.d. ef nöglin er upplituð eða hefur þykknað) skal leita ráða hjá lækni.