Lýsing
Engifer og turmerik eru báðar þekktar fyrir að lækka blóðþrýsting, blóðsykur og blóðfitu. Ýmis annar heilsufarslegur ávinningur þekkist af því að nota þessi efni, bæði í matargerð og til inntöku í formi bætiefna.
Bromelain ensím er notað til að draga úr bólgum og hefur það hjálpað fólki með liðverki og liðagigt. Bromelain brýtur niður prótein og getur þetta því nýst fólki með meltingarvandamál, rétt eins og meltingarensím. Sumir telja að það hjálpi við að brenna fitu og því ætti það er vera góð viðbót þegar við þurfum að léttast. Einnig eru vísbendingar um að það hafi góð áhrif á frjókornaofnæmi, magabólgur eða magasár og niðurgang.