Lýsing
Omega-3 fiskiolía er framleidd úr fiskitegundum sem eru auðugar af Omega-3 fitusýrum. Áhrif Omega-3 fitusýra, einkum EPA og DHA, hafa verið rannsökuð ítarlega og niðurstöður rannsóknanna birst í vísindaritum víða um heim. Jafnframt er oft fjallað um jákvæða eiginleika þeirra í fjölmiðlum. Því hefur meðal annars verið haldið fram að Omega-3 fiskiolía hafi jákvæð áhrif á andlega heilsu og hún dragi úr liðverkjum og morgunstirðleika. Omega-3 fitusýrur hafa einnig góð áhrif á hjarta- og æðakerfi auk þess að gegna mikilvægu hlutverki við uppbyggingu heila og miðtaugakerfs.