Lýsing
AstaFuel veitir þér orkuskot fyrir átök!
AstaFuel er einstök og bragðgóð vegan vökvaformúla sem inniheldur Astaxanthin og MCT olíu úr kókoshnetum auk E vítamíns, sem gefur allt í senn aukna orku og afoxun.
AstaFuel er frábær lausn fyrir fólk sem vill Astaxanthin skammtinn sinn í fljótandi formi, fyrir þá sem stunda íþróttir, þá sem eru á ketó eða 16:8 föstu mataræði. Hægt er að taka eina skeið á morgnana með kaffibollanum í stað þess að „fela“ fituna í kaffinu, AstaFuel brýtur ekki föstuna!
AstaFuel er fyrir alla þá sem leita eftir auknum krafti í amstri dagsins. Öfluga andoxunarefnið Astaxanthin getur bætt frammistöðu þína en það hefur jákvæð áhrif á bæði þrek og endurheimt vöðva.