Lýsing
MariCell XMA er íslenskt krem þróað af Dr.Baldri Tuma Baldurssyni húðsjúkdómalækni og er framleitt á Ísafirði. MariCell XMA er einstaklega virkt krem sem er sérþróað til meðhöndlunar á aumri, rauðri, bólginni húð og einkennum exems. Kremið inniheldur mOmega3TM fjölómettaðar fitusýrur og byggir á íslenskri einkaleyfavarinni tækni.
MariCell XMA
• Slakar á húðinni og eykur fyllingu
• Meðhöndlar auma, rauða og bólgna húð
• Dregur úr kláða
• Sefar húðina
MariCell XMA er CE merkt lækningtæki.