Lýsing
Imodium kemur þarmahreyfingum í eðlilegt horf, vinnur gegn vökvatapi og eykur getuna til þess að halda hægðum. Imodium er notað við tilfallandi (skyndilegum) niðurgangi. Læknirinn getur einnig ávísað lyfinu til meðferðar við langvarandi (langvinnum) niðurgangi og handa þeim sem eru með poka á kviðnum (stóma) eftir sumar maga- og þarmaaðgerðir, sem og þeim sem eiga í erfiðleikum með að halda hægðum (hægðaleki). Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki innan 2 daga.