Dynamic Health Eplaedik DETOX tonic 473 ml

1.613 kr.

Dynamic Health lífræna Eplaedikið Detox inniheldur einnig hunang, engifer, turmeric og sítrónu ásamt „With Mother“sem myndast í ógerilsneyddum eplaedikum og er blanda af ensímum, vítamínum og steinefnum sem myndast við gerjun lífrænnu eplanna sem edikið er unnið úr. Lífræna eplaedikið hjálpar meðal annars til við að örva framleiðslu magasýra sem er mikilvæg fyrir góða meltingu.

Á lager

Vörunúmer: 88031830 Flokkur: Merkimiði:

Lýsing

Lífræna eplaedikið hjálpar til við að örva framleiðslu magasýra sem er mikilvæg fyrir góða meltingu. Sýnt hefur verið fram á að eplaedik hefur áhrif á blóðsykurinn og hjálpar þannig fólki við að léttast á sama tíma, það dregur úr bólgum og verkjum í líkamanum. Það getur því hjálpað til gegn ýmsum heilsufarsvandamálum eins og t.d. höfuðverk, sveppasýkingu, húðvandamálum, vefjagigt og síþreytu, svo eitthvað sé nefnt.

Innihaldsefnin í þessari ljúffengu „Detox“ blöndu vinna sérstaklega vel saman.

Engifer hefur góð áhrif á meltinguna, bólgueiðandi, góð við kvefi, við hálsbólgu, hefur hreinsandi áhrif á líkamann.

Turmeric er virka efnið Curcumin (Polyphenol) sem hefur margvirkandi og góð áhrif á líkamann. Turmeric er ríkur af andoxunarefnum, hefur t.d. bólgueyðandi áhrif, hefur góð áhrif á meltinguna, er góður fyrir minnið og heilastarfsemina svo fátt eitt sé talið.

Hunang hefur að geyma mörg vítamín og næringarefni og er þekkt fyrir að hafa græðandi, sótthreinsandi og bakteríudrepandi eiginleika.

1 mtsk (15ml) af Lífrænu Eplaediki Detox, má blanda í vatn, djús, sótavatn eða það sem hverjum líkar best.