Beautybear Skin 60 stk

3.133 kr.

Þessir gúmmíbangsar frá Beautybear innihalda vítamínbombu sem að styrkir húð. Bangsarnir eru með hindberja en bragðið eitt er nú næg ástæða til þess að bangsanir séu aðlaðandi. Bangsarnir eru vegan, innihalda aðeins náttúruleg bragð og litarefni og engar rannsóknir voru gerðar á dýrum við þróun þeirra. Blandan inniheldur meðal annars E vítamín, B vítamín, A vítamín, sink og ceramide olíu en þessi innihaldsefni vinna saman til þess að styrkja húðina.

Á lager

Vörunúmer: 88034265 Flokkur: Merkimiðar: , , ,

Lýsing

Ceramide olían er einkaleyfisvernduð olía sem að styrkir húð og minnkar sýnileika hrukka. Með aldri minnkar magnið af Ceramide og ef skortur á því myndast þá verður húð þurr og gróf.

A vítamín er oft kallað “húðvítamínið” en það getur hjálpað líkamanum að viðhalda og styrkja húðina. A vítamín getur haft jákvæð áhrif á bólur og rakastig en skortur á A vítamíni getur orðið til þess að húðin verði þurr og gróf.

Sink er steinefni sem að getur hjálpað líkamanum að hreinsa húðina og minnka líkur á bólum. Sink hefur nefnilega með losun efna úr húð að gera svo að ef að líkamanum skortir sink þá getur húðin orðið stífluð.