Lýsing
Artelac er vökvi sem kemur í stað táravökva og er vökvi fyrir snertilinsur. Artelac er notað við einkennum þurrks í hornhimnu og augnslímhúð (augnþurrki) vegna truflunar á táraseytingu og starfstruflana vegna staðbundinna eða altækra sjúkdóma eða vegna þess að augnlok lokast ekki eðlilega/nægilega. Einkenni geta verið sviði, tilfinning fyrir að korn séu í auganu og ljósfælni og koma helst fram við þreytu, í vindi og þegar heitt er. Vökvun og endurvökvun á hörðum snertilinsum.