Persónuvernd

Persónuvernd

Meðferð persónuupplýsinga

Lyfjaver hefur sett sér stefnu og reglur til að tryggja að meðferð persónuupplýsinga sé í samræmi við lög nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

Fyrirspurnir

Ef þú óskar eftir að senda Lyfjaveri athugasemd vegna vinnslu Lyfjavers á persónuupplýsingum, vinsamlegast hafið samband við persónuverndarfulltrúa Lyfjavers á netfangið personuvernd@lyfjaver.is

Vafrakökur (e. cookies)

Vafrakökur eru litlar textaskrár sem vafrinn sækir í fyrsta sinn sem farið er á vefsvæði. Vafrakökur geyma upplýsingar sem vefsvæðið notar meðal annars til að bæta upplifun notandans og til að fylgjast með og greina notkun á vefsvæðinu. Sjá nánar um vefkökur hér.

Lyfjaver nýtir sér vafrakökur til að greina notkun á vefsíðu í þeim tilgangi að þróa og bæta vefinn og gera hann aðgengilegri fyrir notendur.

Lyfjaver notar Google Analytics sem safnar vafrakökum til vefmælinga. Google Analytics safnar nafnlausum upplýsingum og gefur skýrslur um þróun á vefsvæðum án þess að greint sé frá stökum notendum eða persónuupplýsingum. Þessar upplýsingar nýtast við ýmsa þróun á vefnum t.d. á því efni sem notendur sækjast eftir. Vafrakökur eru nýttar við skráningu þessara upplýsinga. Vafrakökur halda skrá yfir fyrri heimsóknir notenda og stillingar notandans í ákveðinn tíma. Við þessa vinnslu eru engar persónulegar upplýsingar varðandi notendur vistaðar. Sjá nánar um Google Analytics hér og hér 

Ef þú vilt komast hjá að vafrakökur séu nýttar á þennan hátt á síðunni má breyta stillingum í vafranum þannig að ofangreindar upplýsingar vistast ekki eða vafrinn biður sérstaklega um leyfi notanda í hvert sinn. Hægt er að nálgast upplýsingar um þetta hér.

Áframsending persónugreinanlegra gagna til þriðja aðila

Lyfjaver varðveitir framangreindar upplýsingar á öruggan og tryggan hátt.

Með notkun okkar á Google Analytics sendum við hins vegar frá okkur ópersónugreinanleg gögn um hvenær síðan var heimsótt, hversu lengi var dvalið á síðunni og hvaðan heimsókn kom o.s.frv. Þessar upplýsingar eru nýttar til að þróa og bæta vefinn eins og útskýrt er hér að ofan.