Lýsing
Wild Biotics er vísindalega þróað fæðubótarefni sem inniheldur mjög fjölbreytta gerlaflóru sem samanstendur af yfir 100 gerlastofnum. Þetta eru mjólkursýrugerlar og aðrar örverur sem finnast náttúrulega í meltingarfærum manna en flestir gerlastofnarnir í Wild Biotics koma frá blómafrjókornum, drottningahunangi og öðrum hunangstegundum. Allt í náttúrunni inniheldur lifandi örverur.
Fyrirtækið New Nordic hefur rannsakað líf örvera, þar á meðal mjólkursýrugerla í fjölda plantna sem þeir hafa safnað saman frá óspilltu náttúrusvæði í Mercantour þjóðgarðinum í Suðurfrönsku Ölpunum. Út frá byltingarkenndum rannsóknum sínum, sem eru fyrstu sinnar tegundir í heiminum, völdu þeir afbrigði sérstakra lifandi örvera með það að markmiðið að búa til fæðubótarefni með örverustofnum sem almennt er að finna í meltingarvegi manna.