Hafkalk 180 hylki

4.285 kr.

Á lager

Vörunúmer: 88018384 Flokkur: Merkimiði:

Lýsing

Náttúrulegur kalk og steinefnagjafi úr hafinu. Styrkir brjósk og bein og er gott fyrir liðina. Kalkþörungar úr Arnarfirði innihalda u.þ.b. 30% Kalsíum, 2% Magnesíum og fjölmörg stein- og snefilefni, m.a. járn, sink, selen, kalíum, mangan, joð og kóbalt. Samtals 74 stein- og snefilefni úr hafinu í náttúrulegu jafnvægi. Kalkþörungar hafa mikið yfirborð vegna einstakrar uppbyggingar og brotna auðveldlega niður í meltingaveginum. Þetta, ásamt samlegðaráhrifum hinna fjölmörgu snefilefna, tryggir góða upptöku og virkni.
Sérstaklega eru það konur sem komnar eru á miðjan aldur sem þurfa á þessum efnum að halda til að fyrirbyggja beinþynningu en einnig konur á meðgöngu eða með barn á brjósti og allir sem ekki fá nægilegt kalk og steinefni úr fæðunni. Vottuð íslensk náttúruafurð.