Lýsing
Corsodyl er sótthreinsandi lyf til munnhirðu. Corsodyl er notað til sótthreinsunar fyrir og eftir munn- og tannaðgerðir. Tímabundið við munnbólgu af völdum gervitanna. Corsodyl er einnig notað til tannhreinsunar þegar erfitt getur verið að koma henni við t.d. vegna tímabundins sjúkdóms, slyss, mikillar tannsteinsmyndunar, tannholdsbólgu og tannslíðursbólgu. Lausnina má einnig nota við tannréttingar.