Lýsing
Ceramide olían er einkaleyfisvernduð olía sem að styrkir húð og minnkar sýnileika hrukka. Með aldri minnkar magnið af Ceramide og ef skortur á því myndast þá verður húð þurr og gróf.
A vítamín er oft kallað “húðvítamínið” en það getur hjálpað líkamanum að viðhalda og styrkja húðina. A vítamín getur haft jákvæð áhrif á bólur og rakastig en skortur á A vítamíni getur orðið til þess að húðin verði þurr og gróf.
Sink er steinefni sem að getur hjálpað líkamanum að hreinsa húðina og minnka líkur á bólum. Sink hefur nefnilega með losun efna úr húð að gera svo að ef að líkamanum skortir sink þá getur húðin orðið stífluð.